Drops Daisy Hversdagsmýkt í hreinni merino ull

DROPS Daisy

Hversdagsmýkt í hreinni merino ull

Innihald: 100% Ull
Garnflokkur: B (20 – 22 lykkjur/ 8 ply / DK
Þyngd/lengd: 50 g = ca. 110 metrar
Mælt með prjónastærð: 4 mm
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 21 l x 28 umf
Meðhöndlun: Handþvottur, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris. / Hentugt til þæfingar
Superwash: no

Made in: Peru
Uppruni hráefnis: Ull frá Suður Ameríku

Þetta garn er með Oeko-Tex® vottun (skírteinisnúmer 23.HPE.36896), Standard 100, Class II frá Hohenstein Institute. Þetta þýðir að það hefur verið prófað fyrir skaðlegum efnum og er öruggt í notkun. Class II þýðir að garnið hentar til að komast í beina snertingu við húðina að miklu leyti, svo sem í blússur, skyrtur, dýnur o.fl.

Finna mynstur fyrir DROPS Daisy Fríar uppskriftir

kr.920

Vörunúmer 106000 Vöruflokkar , , Tögg , , , ,

Upplýsingar um vöruna

DROPS Daisy er mjúkt garn sem er ekki meðhöndlað til að þola þvott í þvottavél (non superwash), spunnið úr 100% extra fínni merino ull. Ullartrefjarnar sem notaðar eru í þetta garn eru ómeðhöndlaðar, sem þýðir að þær eru aðeins þvegnar og ekki meðhöndlaðar með neinni efnameðferð fyrir litun. Þetta eykur náttúrulega eiginleika ullarinnar, gerir trefjunum kleift að anda betur og veitir betri formstöðugleika og áferðargæði.

DROPS Daisy er samanstendur af 4 þráðum sem eru spunnir saman, sem gefur garninu aukna mýkt, skilar sér í fallega afmörkuðum lykkjum sem hentar sérstaklega vel fyrir kaðla, áferðamynstur og perluprjón. Garnið hentar vel fyrir mynstur hönnuð fyrir DROPS Karisma, DROPS Lima, DROPS Cotton Merino og DROPS Merino Extra Fine (garnflokkur B)
Vegna sérstakra uppbygging þessa garns er því sérstaklega mikilvægt að meðhöndla flíkina rétt: gakktu úr skugga um að þú sért með rétta prjónfestu – notaðu því þétta prjónfestu frekar en lausa og fylgdu leiðbeiningum um þvott og umhirðu.

Eins og í öllu merino garninu okkar er merino ullin fyrir DROPS Daisy upprunnin frá free-range, mulesing -free dýrum frá Suður-Ameríku.

 Lesa meira um vörunar okkar og sjálfbærni hér

 Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvuskjám á sama hátt geta litaeiningarnar verið mismunandi á milli litabaða.

Hvernig á að þvo þetta garn?

yarn wash

Handþvottur, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris.

DROPS Daisy er garn sem ekki er meðhöndlað til að þola þvott í þvottavél (non superwash), sem þýðir að það á að þvo það í höndum. Sem sagt, það eru nokkrar mikilvægar leiðbeiningar þegar kemur að því að þvo þetta garn:

  • Fylgdu þvottaleiðbeiningum sem eru á miðanum á garninu og á litakorti fyrir garnið.
  • Þvoðu merino ullina í höndum á 30 gráðum.
  • Ef þarf, notaðu væga vindingu á þvottarprógrammi sem TEKUR EKKI inn vatn.
  • Þvoðu flíkina sér, notaðu fullt af vatni.
  • Notaðu lítið magn af ullarsápu (án enzyma og bleikiefna).
  • ALDREI að nota mýkingarefni (ullartrefjarnar verða linar og aðskildar).
  • ALDREI að láta liggja í bleyti!
  • ALDREI að skilja flíkina eftir í þvottavélinni í langan tíma!
  • ALDREI að láta hanga til þerris, láttu flíkina þorna flata í réttu formi.

 Sjá þvottaskýringar

 Lesa meira um þvottaleiðbeiningar fyrir garn

Litur

01 Natur, 02 Marsipan, 03 Svartur, 04 Ljósgrár, 05 Milligrár, 06 Púðurbleikur, 07 Sæt Orkidé, 08 Pistasíu Ís, 09 Ísblár, 10 Ljós Blár, 11 Ljós Nougat, 12 Karamella, 13 Mandla, 14 Brúnn, 15 Ljós Lavender, 16 Límonaði, 17 Mosagrænn, 18 Dökk Blágrænn, 19 Sjávarblár, 20 Rauður, 21 Crimson Rauður, 22 Magenta, 23 Appelsína, 24 Kobaltblár, 25 Páfagauksgrænn

Áhugaverðar vörur