Tulip heklunálarnar eru einstakar! Eiginlega ekki hægt að útskýra með orðum – en þetta eru sannarlega þær bestu sem við höfum komist í tæri við.
Góður oddur, rennur vel á hálsinum og haldfangið mjög þægilegt. Oddurinn ekki glansandi svo hann truflar ekki augun.
Áprentað á haldfang eru stærðir í mm.
Þetta er vara sem þarf að prufa til að sannreyna. Eigum við ekki öll skilið að eiga góð verkfæri ?
Sömu nálar eru í settunum eins og þær sem eru seldar stakar, hvort sem þær eru með bleiku eða gráu haldfangi.