Bambus-settið inniheldur prjóna í stærðum: 2.25 mm, 2.5 mm, 2.75 mm, 3.0 mm og 3.25 mm, 12 prjónamerki, prjónamál og að sjálfsögðu töskuna sjálfa sem er með renndu hólfi að utan fyrir aukahluti.
Í stálsettinu eru sömu prjónastærðir og í bambus settinu að viðbættum, 2.00mm prjónum.
Prjónamerkin og taskan fylgja líka með stálsettinu.
Prjónarnir eru 15cm á lengd og eru 5stk í hverjum grófleika.
Hægt er að kaupa stálprjónana staka og þá einnig grófari.