Addi Novel Hringprjónar 40-120 cm

Addi Novel Hringprjónar 40-120 cm

Addi Novel hringprjónar úr málmi

40 – 120 cm | Ø 2,5 – 8,0 mm

Addi Novel hringprjónarnir er nýjung frá Addi! Þessir prjónar eru með vinnuvistfræðilegri hönnun sem hjálpar við grip á prjónunum. Þess vegna eru þeir sérstaklega þægilegir og henta vel fyrir prjónara sem þjást af liðagigt í höndum.

Prjónarnir eru ferhyrndir með sléttum, ávölum hliðum ásamt því að hafa litlar rákir á yfirborðinu sem hjálpar bæði til við að bæta grip þitt ásamt því að garnið rennur auðveldlega á prjóninum. Þetta gerir það að verkum að þægilegra er að prjóna með AddiNovel prjónunum.

Oddurinn er lace oddur, en þeir eru hvassari en venjulegir oddar. Prjónarnir eru nikkel-fríir og snúran er rauð á litinn, mjúk og sveigjanleg.

Framleitt í Þýskalandi.

Þýska fyrirtækið Addi hefur verið að framleiða í yfir 190 ár. Þess vegna má búast við úrvalsvörum með fullkomnum skilum, sveigjanlegum snúrum og sléttum og léttum oddum.

kr.1.850kr.2.090

Lengd

40 cm, 60 cm, 80 cm, 100 cm, 120 cm

Þvermál

2.5 mm, 3.0 mm, 3.5 mm, 4.0 mm, 4.5 mm, 5.0 mm, 5.5 mm, 6.0 mm, 6.5 mm, 7.0 mm, 8.0 mm

Áhugaverðar vörur